|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Talning
Fyrir 1123 dögum
Er síðasti dagur ársins 2008
|
17.01.2009 18:48:54 / happykriss
Já það er erfitt að væla yfir kreppu þegar maður er búinn að panta sér ferð til Danmerkur. En það var erfitt að standast þetta tilboð hjá Express þegar það kom upp enda er frí gisting í boði þó lestin kosti sitt þá er það minna en hótel fyrir 3 nætur. Hlökkum bæði rosa til enda alltaf gaman að hitta liðið sitt þarna í Danmörkinni.
Viðar búinn að koma með lista yfir það sem við eigum að koma með þannig að ég þarf víst að fara í búð núna í vikunni, e-ð sem ég geri mjög sjaldan hehe, mjög óhagstæð húsmóðir.
Reikna nú ekki með að versla neitt rosa enda aðallega farið til að hitta fólkið en allt í lagi a kíkja aðeins í H&M Venlig Hilsen (eins og þeir segja þarna í útlandinu)
»
31.12.2008 12:35:20 / happykriss
...og talan bara hækkar og hækkar en andinn alltaf jafn ungur og það er fyrir öllu . Þetta er reyndar búið að vera bara yndislegt ár hjá mér persónulega, öll ferðalögin með yndislegu fólki, fann mér yndislegan kæró (maður er lengi að þessu en vandar bara valið vel!), frysti lánið á bílnum í nokkra mánuði til að fresta vandanum aðeins og var mjög dugleg í djammlífinu sem er mjög nauðsynlegur hluti í félagslífinu.
Vona bara að árið 2009 verði jafn skemmtilegt hjá mér og ykkur öllum...nenni ekki að hugsa um kreppu og leiðindi svona á síðasta degi ársins þannig að ég segi bara eigiði yndisleg áramót og farsæld á nýju ári!
Kær kveðja HK
»
29.12.2008 13:37:54 / happykriss
Nú finnst manni jólin bara vera búin, komin aftur suður og fer í vinnu á morgun þriðjudag.
Ég byrjaði jólafríið reyndar aðeins fyrr en ég ætlaði og kom norður á sunnudagskvöldið fyrir viku, fór á kistulagningu á mándudeginum sem var mjög erfið en gott að fá að kveðja Hoffu frænku almennilega.
Í hádeginu á þriðjudaginn var svo skötuveisla í D-inu þar sem allt fólkið í raðhúsinu kom saman og borðaði mjög sterka skötu (ég fékk mér reyndar mjög lítið bara þeim mun meira af kartöflum og smjöri en mar varð að vera með ), fékk mér einn öl með og sumir fengu sér ákavíti með svona til að drepa skötubragðið eða öfugt því ég veit ekki hvort er betra. Dagurinn fór svo í verslanir, heimsóknir og auðvitað í það að skreyta jólatréð.
Aðfangadagur frekar rólegur bara, möndlugrauturinn borðaður í hádeginu og fékk hún Lydía litla gjöfina en hún var ekkert að láta vita af möndlunni heldur borðaði hana bara en ég hafði séð hana á disknum hennar þannig að ég vissi hvert hún fór. Annars var bara dagurinn hefðbundinn hjá okkur mömmu og pabba og þakka ég öllum sem gáfu mér gjafir innilega fyrir mig.
Jóladagur MJÖG rólegur og lá ég fyrir framan kassann hálf sofandi allann daginn en fór svo og spilaði við Gunnþór og stebbu um kvöldið og svo bættust fleira gott fólk í hópinn þegar líða fór á kvöldið. Dagurinn eftur var einnig rólegur og góður svona sem endaði einnig með heimsókn,
Á Laugardaginn var svo jarðarförin og fór dagurinn mest í það en svo matarboð um kvöldið og litlu jólin hjá vinkonunum sem alltaf er nú skemmtilegt, en ég endaði svo í sjallanum á Eurobandinu, svaka stuð þó svo að það hefði mátt vera meira fólk en ég hitti marga sem ég þekkti. Gærdagurinn fór svo í það að raða í töskuna upp á nýtt, einn brynjuís og svo var lagt af stað suður um fjögur leitið.
Jæja þetta er víst orðið ansi langt blogg hjá mér mætti kannski vera minna og jafnara en hafið það gott og njótið restina af jólahátíðinni.
P.s. Minni á nýja könnun!
»
24.12.2008 09:51:23 / happykriss
Kæru vinir, innilegar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, þakka öll gömlu og góðu árin. Hafið það ávallt sem best og munið að borða, spila, hitta vini og fjölskyldu um jólin og njótið tímans með þeim 

»
02.12.2008 21:49:06 / happykriss

Jæja nú er bloggið komið í jólaskapið með rauðu síðunni og hver veit nema bloggarinn sjálfur fari nú að skrifa e-ð mis gáfulegt vegna fjölda áskoranna þó það sé ekki hægt að sjá það á kommentunum.
»
05.11.2008 19:14:42 / happykriss
»
04.11.2008 16:19:42 / happykriss
Your birthday means that you
love the sun and the beach.
Your best colors are red and yellow. You tend to have many friends and you are well-liked, possible because of your outgoing and sunny personality. You are a very positive and enthusiastic person. Shopping is likely something you enjoy very much, not just for yourself, but for other people as well. You shine at parties and get togethers, and you are definitely an extrovert.
»
13.10.2008 21:36:30 / happykriss
Síðasta planaða helgin er á enda liðin þangað til í byrjun nóvember þegar ég fer í kreppuferð til Wales.
Mamma og pabbi voru sem sagt hérna um helgina og Eyþór og Sossa líka þannig að það var nóg að gera alla helgina. Við fórum á minningartónleikana um Villa Vill og var það mjög gaman og stóðu listamennirnir sig mjög vel og þá auðvitað Helgi Björns fremstur í flokki (maðurinn klikkar aldrei á stuðinu) en sætin sem við vorum í voru ekki svo góð en sem betur fer gátum við skipt um sæti og þá sáum við aðeins betur. Fyrir tónleikana fórum við út að borða á Ask sem var rosa gott og gaman.
Laugardagurinn var rólegur, farið út að borða aftur, tekinn rúntur á Grindavík og svo var matarboð hjá tengdaforeldrum Eydísar. Fengum rosa góðan mat og skemmtilegur félagskapur en ég fór samt heim um 11 og snemma að sofa miðað við laugardagskvöld.
Á sunnudag var svo farið enn einu sinni út að borða í kreppunni og svo í kringluna þar sem ég átti að velja mér afmælisgjöf frá mömmu og pabba en þar sem mig vantar ekkert eins og er þá bíð ég með þetta aðeins. Ma&pa fóru svo í loftið um 3.30 og við í afmælisveislu til systur Kidda þar sem borðið svignaði undir kræsingum. Ætli ég haldi nokkuð upp á afmælið mitt því það er erfitt að toppa svona boð.
Jæja þannig var helgin hjá mér og adios amigos!!!
»
09.10.2008 16:17:21 / happykriss
Innilega til hamingju með afmælið elsku bróðir alltaf skemmtilegur þessi tími sem við erum jafn gömul . Vona að þú hafir haft það gott í dag og ég hringi í kvöld!
»
03.10.2008 16:16:35 / happykriss
Ég var að labba heim úr vinnunni áðan og var með ipodinn í eyrunum og þá kemur lag sem rifjaði upp skemmtilegar minningar hjá mér. Lagið er Bye Bye Love og þegar ég heyrði það fór ég að hugsa um það þegar við vorum í Los Angeles við 3 vinkonur og sátum á ströndinni í frekar köldu veðri miðað við stað og stund þar sem sólin skín víst alltaf nema þann tíma sem við vorum. Alla vega þarna á ströndinni byrjuðum við allt í einu á því að semja nýjan texta við þetta lag, ég man nú ekki alveg textann okka en hann var e-ð um au-pair stelpu og strandvörð. Þetta var auðvitað ritað niður og er vel geymt hjá einni af okkur (ekki mér) og þar eru einnig pappírar með leikjum sem við fórum í á leiðinni frá LA og til San Francisco og guð minn góður hvað það var mikið hlegið á þeirri ferð.
Sumarið er tíminn með Bubba minnir mig á Siggu vinkonu og Steindór Draumur um Nínu minnir mig á skólaferðalagið í 10. bekk Einn diskur með LIVE minnir mig á þegar ég var í bandó og reyndar fullt af lögum sem voru vinsæl á því ári sem ég var þar Nína og Geiri er e-ð ég og Eydís helst að keyra norður og þá upp á Holtavörðuheiði. Svo mætti lengi telja...
Góða helgi gott fólk
»
01.10.2008 18:31:29 / happykriss
»
20.09.2008 18:39:31 / happykriss
Það er erfitt að kvarta undan kreppunni og að lánin séu að hækka þegar maður er endalaust í útlöndum eins og ég er búin að vera þetta árið. Ég er sem sagt búin að fara fjórum sinnum út og á tvær ferðir eftir, ekki slæmt það!
Hann Kiddi minn er svo sætur í sér að hann er að bjóða mér til Köben um næstu helgi . Þetta er bara stutt helgarferð þannig að það verður ekki farið til Århus í þetta skipti en ég er að vonast til þess að hann bróðir minn myndi nenna að keyra niður og hitta okkur í köben . Það væri rosa skemmtilegt en samt svolítið langur akstur fyrir stuttan tíma.
Síðasta ferðin er svo til Wales í nóvember þar sem við nokkrar úr vinnunni erum að fara að skoða vinaskólana okkar þar.
Á þessu ári er ég búin að fara til Danmerkur (nokkrum sinnum), Þýskalands, Belgíu, Hollands (rétt náði að keyra smá í gegn), Svíþjóðar, Skotlands, Englands og Wales (þurfum að fljúga til London og taka lest til Wales). Vá hvað ég er búin að eiga gott ár í ferðalögum...bara gaman.
Þar til næst tata!!!
»
18.09.2008 16:51:39 / happykriss
Þetta var sem sagt niðurstaðan SPRING You are SPRING! You are very good-looking, beautiful. You love yourself very much and your friends too. You are a family-oriented person and love being with them. You enjoy people and you love animals too. You don't like the internet very much. You enjoy school and you don't mind studying. You can't stay inside. You love the outdoors and you love games. You like enjoying yourself. You are a good listener. You enjoy sports and you love colors. You need to stop stressing on yourself. Kveðja frá very good-lookin og beautiful persónunni 
»
06.09.2008 11:49:46 / happykriss
Ja hérna hvað maður er latur að henda e-u hérna inn þessa dagana.
Við Gunna vinkona vorum að komast að því að við eigum ekki að fara í verslunarleiðangur saman því við endum alltaf á því að eyða eins og brjálæðingar. Ég keypti mér rosa fínan kjól og nokkrar flíkur í viðbót en Gunna eyddi aðeins meiru því hún keypti sér tvenn stígvél, kjól líka og e-ð meira. Þetta gerðum við líka í sumar þegar við vorum fyrir norðan, fórum aðeins í búðir og náðum að eyða. Eini gallinn við þetta er sá að Gunna hefur efni á þessu en ég ekki eins. Er bara ekki með mikið peningavit þegar Euro kortið er annars vegar 
Við fórum á stuðmannaballið út á nesi síðasta laugardag og var það svaka gaman og ekki var leiðinlegra í partýinu hjá Gerðu fyrir ballið. Við hittumst landsliðið (blauta liðið) í vinnunni fyrir ballið og vorum komnar í brjálað stuð og byrjaðar að syngja því Valan kom með gítarinn og við hinar náðum okkur í skeiðar og potta til að slá taktinn þannig að það má eiginlega segja að þetta hafi verið hljómsveitaræfing því við erum fyrir löngu búnar að stofna hljómsveit en æfum e-ð minna nema við svona skemmtileg tækifæri.
Átti svo að vera róleg helgi þessa helgina en við fórum samt nokkrar á mimmann og fengum okkur hvítvín en þegar við áttum að borga þá rann nú það litla af okkur því við borguðum 1800 fyrir tvö glös! Stelpurnar fóru e-ð að tuða yfir verðinu á þessu og svarti maðurinn sem var að vinna á barnum ákvað þá að bjóða okkur í eitt glas í viðbót því hann hefur örugglega rukkað okkur um e-ð túrista verð. Mimmaferðum verður fækkað ef verðið er komið í þetta þvi það er jafn dýrt að kaupa bara flösku í ríkinu og drekka hana heima.
Jæja vínáhugamanneskjan kveður að sinni. Hafið það gott!!!
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 63429
|